Sælir mótorhjólaeigendur.
Aðalskoðun býður aflsátt á mótorhjólaskoðunum í maí.
Tiboðsverðið er 3.200 kr.
Ekki stendur til að auglýsa þetta sérstaklega, en ykkur er velkomið að láta þetta berast.
Með kveðju / Regards
Aðalskoðun
Smurdagur Gaflara var haldinn fyrr í dag ( laugardaginn 28 apríl 2012). Mjög góð mæting var þrátt fyrir rigningu.
Margir komu á hjólum. Minna var skipt um olíu en oftast áður en menn tóiku vel til matar síns og smurðu grill-kjötið með olíu sósu.
Ekki var farið í hjólatúrinn sem áætlaður var vegna mikillar úrkomu.
Sjá myndir í myndasafninu.
Skoðið myndir frá Júlla Bess í Myndasafninu. Allt er STÓRT í USA.
http://gaflarar.com/index.php/myndasafn/julli-bess-i-usa
Hringferðin 2012 er á dagskrá 15-17 júní n.k. Enn eru nokkur pláss í rúm laus.
Þeir félagar sem hafa hug á að koma í ferðina þurfa að bóka sig sem allra fyrst því við þurfum að staðfesta fljótlega þessi gistirými sem við eigum frátekin. Við þurfum að skila auðum rúmum fyrir 20 apríl.
Kveðja
Stjórnin
p.s. minni þá sem eiga eftir að greiða ferðagjaldið að gera það sem allra fyrst, kr. 20.000,- á reikning 0544-05-421073, kt. 520407-1380.
Ágætu félagar, Júlíus Bess varð sjötugur núna 11 mars s.l. og í tilefni af því heimsóttum við nokkrir félagar hann og afhentum honum skjal til staðfestingar á því að hann er orðinn "Heiðurs Gaflari". Til hamingju Júlli.
Stjórnin
Aðalfundur Gaflara var haldinn í gær 10. mars. Góð mæting var á fundinn eða 25 félagar sem er nærri fjórðungur félaga.
Fundurinn fór vel fram og voru eftirtaldir endurkjörnir í stjórn, Sigurjón "Castro" formaður, Ásgeir, varaformaður og Jóhann Þ, ritari. Gunnlaugur, gjaldkeri og Eiður, meðstjórnandi, eru einnig í stjórn en ekki var kosið um þau embætti núna.
Dagskrá sumarsins var kynnt og má sjá hana á "Viðburðir". Eins er nokkrar myndir komnar í myndaalbúmið.
Ágætu félagar, Nú er aðalfundur Gaflara á laugardaginn, 10 mars, kl. 17:00 á A. Hansen, Gamla Vínhúsið.
Hvetjum félaga til að mæta. Margir ætla að fá sér að borða eftir fundinn.
Sjá nánar á "viðburðir".
Stjórn Gaflara
Látinn er góður félagi, Valgeir Daðason.
Hann hefur hjólað mikið með okkur og verður söknuður af honum.
Sendum við fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Gaflarar
Ágætu félagar.
Minnum þá sem eiga eftir að greiða árgjaldið fyrir 2012 að gera það sem fyrst.
Þökkum öllum þeim sem nú þegar hafa greitt félagsgjaldið.
Kveðja
Stjórnin
Aðalfundur Gaflara verður haldinn 10. mars n.k. á A. Hansen, Vínhúsið, kl. 17:00.
Dagskrá samkvæmt lögum klúbbsins.
Á eftir ætlum við að fá okkur steik og eiga góða stund saman.
Minni félaga á að skrá sig á fundinn og í matinn ( sitt hvor skráningin )
Stjórnin