Ágætu félagar,
Ólafur R. Magnússon, Óli bruni, hefur verið duglegur að senda okkur greinar um hjólin okkar. Það mun á næstu vikum/mánuðum birtast fleiri pistlar um hjól frá honum. Það var Hilmar Lúthersson á Selfossi, Snigill nr. 1 og Drullusokkur nr. 0, sem gaf Ólafi þetta viðurnefni um árið. Það er vel lýsandi fyrir starfið hans Óla en hann vinnur hjá Slökkvliliði höfuðborgarsvæðisins, á forvarnarsviði. En hér er mynd sem Óli horfir á þessa dagana og veltir fyrir sér hvort hann eigi að fjárfesta í einu slíku og sameina vinnuna og áhugamálið í einu tæki. Þetta er bresk græja ( auðvitað) framleidd af Leyland og með V2 BSA mótor.