tekið af mbl.is
Hannaður eins og mótorhjól
Yamahabíllinn er glæsilegur útlits enda hannaður af Gordon Murray sem hannaði meðal annars McLaren F1. Hönnun bílsins kallast iStream. mbl.is/afp
Yamaha er eitt af þessum fyrirtækjum sem smíðar nánast allt, hljóðfæri, mótorhjól og meira að segja geislaspilara.
Yamaha hefur hins vegar aldrei smíðað bíl áður þótt vélar frá þeim hafi knúið bíla eins og Toyota 2000GT og Lexus LFA. Á Tokyo Motor Show í ár bar þó eitthvað alveg nýtt fyrir augu, en það var bíll frá Yamaha og það alvöru sportbíll þótt í tilraunaútgáfu sé.
Aðeins 770 kíló
Eins og búast mátti við frá mótorhjólaframleiðanda er bíllinn léttur og hannaður til að vera skemmtilegur í akstri. Útlitið minnir á ofurbíl og framendinn er ekki ólíkur þeim á Toyota FT-1 tilraunabílnum, en Toyota og Yamaha hafa alltaf haft með sér náið samstarf. Grindin er byggð á framleiðslukerfi Gordon Murray sem hannaði meðal annars McLaren F1 og kallast hönnunin iStream. Koltrefjagrindin er hönnuð þannig að hún þarf færri íhluti sem eru léttari án þess að það komi niður á styrk grindarinnar. Þess vegna er bíllinn aðeins 770 kíló að sögn Yamaha þrátt fyrir að bíllinn sé svipaður að stærð og Mazda MX-5 sem er 350 kílóum þyngri. Framleiðsluferlið líkist meira samsetningu á mótorhjóli þar sem aukahlutunum er raðað utan á grindina, í stað þess að undirvagn og yfirbygging komi saman í miðju ferlinu líkt og gert er í bílaframleiðslu. Engar vélarupplýsingar hafa verið gefnar út ennþá en það er deild sem Yamaha verður ekki í vandræðum með, verði ákveðið að koma með þennan bíl í framleiðslu.
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.