tekið af bifhjol.is
Við samanburð á 10 löndum í Evrópu kemur í ljós að Ísland er eitt af ódýrustu löndunum til að taka mótorhjólapróf í Evrópu. Meðalkostnaður með öllu er um það bil 900 evrur á Íslandi á meðan að það getur verið allt að 3.200 evrur í Svíþjóð og 2.500 evrur í Hollandi eða Noregi. Aðeins Belgía og Írland eru ódýrari en samt nánast á pari við Ísland.