Nú erum við á lokasprettinum að Hjóladögum 2010, og því langar okkur að hvetja hjólafólk til að mæta og skemmta sér með okkur. Sniglabandið verður að spila á laugardagskvöldinu og eins langar okkur að vekja sérstaka athygli á SWAP-MEET‘inu, sem er skipti- og sölumarkaður með hjólatengdar vörur. Til að taka þátt í því þarf fólk bara að mæta með það sem það vill selja, eða skipta. Tilvalið tækifæri til að laga til í skúrum og geymslum.
Stöndum saman og höfum gaman!
Kveðja,
stjórn Tíunnar.
Föstudagur, 09. júlí 2010 10:37
Hjóladagar !
Skrifað af Bergur Kristinsson
Lesið 125 skipti
Birt í
Fréttir


