Föstudagur september 10 , 2010
Letur stærð
   
Miðvikudagur, 01. september 2010 09:28

Ljósanótt

Ágætu hjólafélagar !

Þá er komið að stæðstu helgi ársins hjá klúbbnum okkar, Ljósanóttahelgin.  Eins og undanfarin ár þá hefst hátíðin okkar með grilli hjá OB á Fitjunum kl. 13:00, grillað verður til kl. 14:00 en þá verður farinn smá hringur um Skagann, síðan verður safnast saman við Nesvelli, lagt af stað niður Hafnargötuna kl. 15:00.

Bestu hjólakveðjur

Ernir, Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Þriðjudagur, 27. júlí 2010 21:27

Custom Bike sýning á Menningarnótt

Custom Bike sýningu á Menningarnótt 21 ágúst.

H-DC ICE stendur fyrir Custom Bike sýningu á Menningarnótt 21 ágúst. Við erum að leita eftir hjólum af öllum stærðum og gerðum sem menn vilja sýna.
Hugmyndin er að fá hjólin á sýningasvæðið kl 13 en sýningin hefst svo kl 14 og lýkur kl 17.
Með þessu erum við að efla áhuga almennings á mótorhjólum og á H-DC ICE að sjálfsögðu en sýningarsvæðið verður í miðbænum.

Nánanari upplýsingar síðar.
Skráðu hjólið þitt hjá Spessa 8201918 eða Sigga Porter 8562756

Föstudagur, 09. júlí 2010 10:37

Hjóladagar !

Nú erum við á lokasprettinum að Hjóladögum 2010, og því langar okkur að hvetja hjólafólk til að mæta og skemmta sér með okkur. Sniglabandið verður að spila á laugardagskvöldinu og eins langar okkur að vekja sérstaka athygli á SWAP-MEET‘inu, sem er skipti- og sölumarkaður með hjólatengdar vörur.  Til að taka þátt í því þarf fólk bara að mæta með það sem það vill selja, eða skipta. Tilvalið tækifæri til að laga til í skúrum og geymslum. 
 
Stöndum saman og höfum gaman!
 
Kveðja,
stjórn Tíunnar.

Fimmtudagur, 08. júlí 2010 00:55

King Of The Street.

Kvartmíluklúbburinn kynnir: King Of The Street.

Þetta er 4. keppni sumarsins.
Hún fer fram laugardaginn 17. júlí 2010

Keppnislýsing:
Þetta er keppni fyrir götubíla. Samþykkt eldsneyti er eingöngu það sem selt er á bensínstöðvum, ætlað til götuaksturs.
Tæki skulu standast bifreiðaskoðun á staðnum,minniháttar frávik leyfð á pústkerfum,t.d ekki nauðsyn að hafa hvarfakút.
Dekkjabúnaður bíla verður að DOT eða E merktur og ekki stærri en 30 tommur á hæð ef um ET street, drag radial eða aðra götuslikka að ræða.
Það verður fylgst með því að menn séu að nota rétt bensín.
Þetta eiga semsagt að vera bílar sem eru keyrðir öðru hverju um göturnar en ekki bara á kvartmílubrautinni.

Keppt verður í sex flokkum á bílum og fjórum flokkum á mótórhjólum.

Bílaflokkar.
Bílar með drifi á einum öxli keppa í 4 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985

Fjórhóladrifsbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur

Jeppar, trukkar og pikkupar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur

Mótorhjól:
Racerar
799cc og minni
800cc og stærri
Hippar
999cc og minni
1000cc og stærri

Einnig verða þessi flokkar keyrðir, en þeir gilda ekki til titilsins King of the street.


Outlaw street - keyrður 1/4 mílu
númeraskylda og allt leyft.
keyrt heads up og pro tree

Opinn flokkur keyrður 1/8
Allt leyft
Keyrt heads up og pro tree

 

Til þess að taka þátt þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í klúbb innan vébanda aksturíþróttarnefndar ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Keppnisfyrirkomulag.

Keppt verður eftir fyrirkomulagi sem kallast Second chance.  Þetta kerfi er þannig upp sett að þú þarft að tapa tvisvar til að detta út. 
Skýringarmynd er hér:
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=51796.0
 
ATH: það er einungis keyrt 1 run í hverri umferð,  Þannig að ef þú klikkar í ferðinni þá getur það kostað þig sigurinn.
Keyrt verður á protree.

Allir flokkar verðir keyrðir þangað til að sigurvegar hefur fundist í öllum flokkum. 
Þeir sem lenda í fyrstu 3 sætum í hverjum flokki, keppa um titilinn King of the street í hjólaflokki og bílaflokki,
Það verður keyrt með allt flokks fyrirkomulagi
(Keppendum er raðað upp eftir besta tíma hvers og eins og er byrjað á því að stilla saman lakasta og næstlakasta tíma.
Sá sem tapar ferð er úr leik, sigurvegari hverrar ferðar heldur áfram á móti þeim sem næstur er í tímaröðinni.)
Sá sem sigrar þann útslátt verður síðan krýndur King of the street

 

Dagskrá:

Fimmtudagurinn 15. júlí

19:00 – 22:00   Æfing fyrir keppendur / opinn æfing

Laugardagurinn 17. júlí

9:30 – 11:00   Mæting keppenda
11:00      Pittur lokar
11:05      Fundur með keppendum
11:15 – 11:45   Æfingaferðir
11:45      Tímatökur hefjast
13:20      Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45   Hádegishlé
13:45      Keppendur mættir við sín tæki
14:00      Keppni hefst
16:25      Keppni lýkur
16:55      Kærufrestur liðinn
20:30      Verðlaunaafhending, staðsetning auglýst síðar
ATH: Dagskrá getur breyst ef keppendafjöldi verður mikill.


Upplýsingar um skráningu:

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á Kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni

SKRÁNINGU LÝKUR föstudagskvöldið 16. júlí Á SLAGINU 22:00

Það fær enginn að keyra keppnisæfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld.

Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370
ATH það þarf bara að fylla þetta út einu sinni fyrir æfingu og keppni.

Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir kl: 23:59 föstudaginn 16. júlí.
ATH.  Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geti ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma.
Enginn fer niður í pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd.

Einnig ætla ég að biðja sem flesta um að reyna að millifæra keppnisgjöldin

Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199

Keppnisgjaldið er 5000kr
KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA

ATH til keppenda.

Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!

PITTUR LOKAR KL 11:00
ÞEIR SEM ERU EKKI MÆTTIR FYRIR ÞANN TÍMA FÁ EKKI AÐ TAKA ÞÁTT
ÞAÐ VERÐUR TEKIÐ HART Á ÞESSU Í ÞESSARI KEPPNI


Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni

Þriðjudagur, 06. júlí 2010 00:36

Dempara stillingar

Til landsins er að koma mjög færa maður sem getur hjálpað okkur að stilla og setja upp dempara á hjólum.

Viðkomandi aðili heitir Wayne og er mjög fær í að setja upp og stilla allar tegundir dempara, hvort sem um er að ræða Road-Race, Touring, Supermoto eða Enduro/Motokrosshjól. Hann hefur starfað við Worldsuperbike, MotoGP, WEC, ásamt því að hafa unnið fyrir Ghost Rider svo eitthvað sé nefnt.

Hann hefur stillt fyrir okkur hjólin þegar við höfum farið erlendis að hjóla í brautum og hefur það gert gæfu mun.

Við viljum stilla þessu í hóf og ætlar hann því aðeins að rukka 10þús fyrir hjól. Og þar sem margir eyða tugum þúsunda og jafnvel hundruðum þúsunda árlega í púst og aukahluti, í von um að hjólin virki betur, ætti því 10þús. ekki að vera mikil peningur í svona lagað, frekar gjöf en ekki gjald

Að hafa réttar stillingar á hjólinu eru ekki bara til þess gerðar að bæta akstur hjólsins, þær spara líka dekkin og veita meira öryggi í akstri, sem gefur svo aftur aukna akstursánægju og betri tíma í braut.

Við stefnum á að hann verði bæði upp á Rallýkrossbraut og jafnvel á einhverju motokross svæðinu og hjálpi fólki að setja upp fjöðrunina á meðan það tekur nokkra hringi og kemur svo aftur inn og geta þá sagt hvað þeim finnst og unnið út frá því að "0" stilla hjólið.

Wayne hefur ekki bara margra ára reynslu af uppsetningu hjóla, heldur líka mjög góðan skilning á því hvað hver og einn ökumaður leitar eftir.

Dagskráin er eitthvað svona:
Fimmtudagskvöldið 8. Júlí Rallýkrossbraut á milli 19:00-22:00 (Supermoto og Götuhjól)

Föstudagurinn 9. Júlí ef næg þátttaka fæst, þá verður hann með uppsetningu á Enduró og krosshjólum, en til þess að þetta náist, þurfum við í það minnsta 5 manns (enduro/motokross)

Laugardagurinn 10. Júlí Hjólalegan Þórisstöðum Hvalfirði á milli 14:00-18:00 (Götuhjól)

Sunnudagurinn 11. Júlí Rallýkrossbrauti á milli 16:00-19:00 (Supermoto og Götuhjól)

Allir þessir tímar geta breyst, bæði eftir veðurfari og þátttöku, því er best að vera í sambandi við mig fyrir hvern tíma. Já það væri gott ef fólk hefur áhuga á þessu, að vera í bandi og bóka þann tíma svo við getum skipulagt þetta almennilega og allir fengið sem mest út úr þessu.

Rúnar P.
s. 6974881
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Síða 1 af 15

Inn skráning

Nýtt á spjallinu

Re:Afmæli.
EyjólfurK 10.9.2010 14:30
Re:Bifhjólaslys
hjorleifur 5.9.2010 13:38
Afmæli.
sigurjon 8.9.2010 9:52
Re:Bifhjólaslys
sigurjon 5.9.2010 13:24
Re:Íslandsmeistari.
Doddi 7.9.2010 19:21
Re:Bifhjólaslys
DR 4.9.2010 20:44
Íslandsmeistari.
sigurjon 7.9.2010 7:50
Kawasaki kxf450 08
Kawasaki kxf450 08 4.9.2010 17:59
Afmæli.
sigurjon 7.9.2010 7:40
Bifhjólaslys
Kristjánf 3.9.2010 20:38
Re:Bifhjólaslys
hjorleifur 6.9.2010 12:04
Re:Ljósanótt.
S.O.D Suðurnes 3.9.2010 15:20
Re:Bifhjólaslys
Kristjánf 5.9.2010 23:29
Re:Afmæli
gunnlaugur 3.9.2010 8:56
More...

Á döfinni

Enginn viðburður á næstunni.

Tengdir notendur

Total: 54 Members: 0 / Guests: 54
No members online

Gaflara afmæli

in 4 days
in 5 days

 

Mótorhjólasafn íslands

  • Vantar aðstoð
    Nú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að hjálpa okkur við að koma...
  • Hjóladagar
    Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý bakaði vöflur eins og herforingi...
  • Gjöf frá JHM sport
    Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með von um að aðrir í...

Sniglar .is

  • Skilar skoðun einhverju?

    Evrópusambandið er um þessar mundir að samræma reglur um skoðun ökutækja, þar á meðal mótorhjóla. FEMA samtökin sem Sniglar eru...

  • Grænni mótorhjól verða dýrari

    Hingað til hafa mótorhjól sloppið við mengunarreglugerðir Evrópusambandsins en það gæti farið að breytast ef ráðamenn í Brussel ná sínu...

  • Dómi í Noregi snúið við

    Við sögðum frá því hér á sniglar.is í vor að ökumaður bíls í Noregi hefði verið sýknaður af því að...