Föstudagur september 10 , 2010
Letur stærð
   
Laugardagur, 23. janúar 2010 13:03

Aðalfundur 2010

Aðalfundur Gaflara árið 2010 verður haldinn á Fjörukránni (Hellinum, Salurinn á jarðhæð hótelsins) Laugardaginn 27. febrúar næstkomandi klukkan 16:00. Samkvæmt lögum félagsins fer fram kosning til formanns, varaformanns og ritara á aðalfundi þetta árið. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að bjóða sig fram verða að skila framboðum til núverandi stjórnar fimm dögum fyrir aðalfund. Tilllögur að lagabreytingum sem bera á upp á aðalfundi verða að hafa borist stjórn tíu dögum fyrir aðalfund. Núverandi lög Gaflara má lesa hér (Þú verður að vera innskráður á vefinn) Núverandi stjórn hefur lýst yfir áhuga á að starfa áfram.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa greiddir félagar 2010.

Búið er að semja við Fjörukránna um mat að aðalfundi loknum og er verðið 1.500 kr. fyrir utan vín. Heyrst hefur að svo verði ball í húsinu fram eftir nóttu.

ATH á vefnum eru settir upp tveir dagskrár liðir, annarsvegar mæting á aðalfund og hinnsvegar matur eftir aðalfund. Mikilvægt er að menn skrái sig á viðkomandi liði svo áætla megi fjölda. Skráning hér.

Birt í Fréttir
Miðvikudagur, 02. desember 2009 01:22

Hinar mögnuðu hliðar jakkans !

Þær eru nokkar hliðar jakkans þessa dagana.. eða eru jakkarnir kannski fleiri en einn, a.m.k. mætti Castró okkar í leður útgáfunni í dag.. sennilega tilraun til að vera harður og töff. Sú fyrirættlan kappans féll þó með öllu alveg um sig sjálfa þegar hann fór að dásama hænuna ( Suzuki ). Fundur kvöldsinns var hinsvegar hin mesta skemmtun, myndir sumarsinns voru látnar rúlla á varpa og var upprifjunin skemmtileg,

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 01:05

Lím dagurinn

Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Landsamband Íslenskra Mótorhjólaklúbba stofnað, skammstafað LÍM. Samband þetta er ætlað að vera vettvangur þar sem allir mótorhjólaklúbbar geta komið að með sínar skoðanir á þeim málum sem snúa að mótorhjólafólki almennt. Þetta er ekki á neinn hátt félag eða klúbbur heldur vettvangur þar sem hjólamenn, sem er ört vaxandi hópur, geta fengið stuðning við málefni sem þau berjast fyrir s.s. öryggi mótorhjólamanna. Má segja að um eins konar hringborð sé að ræða þar sem allir klúbbar landsins geta sent einn forsvarsmann með sitt atkvæði. 

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:52

1,2,3.... SUMAR

Síðasti vetrar fundur Gaflara var haldinn Þríðjudaginn 7. Apríl í húsnæði Kvartmílu klúbbsins. Mætingin var góð og bikerarnir farnir að „bruma“ enda komið sumar.... er það ekki annars. Athygli vakti þó að Margeir mætti ekki, en honum er fyrirgefið af þeim sökum að hann er enn ekki búinn að fatta hvað snýr fram eða aftur á nýja hjólinu, enda ekki nema von á að það gangi illa, þar sem 3 tonn af gleri og tvær frystikistur eru að villa um fyrir honum, Hjölli var að venju erlendis... að hanns sögn, en við félagarnir erum klárir á að hann getur bara ekki beygt V-Max-inum inn á planið hjá kvartmílu klúbbnum.

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:51

Aðalfundar-uppgjör

Aðalfundur Gaflara var haldinn Laugardaginn 14. Mars á fjörukránni og var mæting félagsmanna tæplega 50% af skráðum félögum. Fundurinn hófst á að Castró kaus sjálfan sig sem funfarstjóra og útnefnd Ofur-hippan sem fundarritara. Að lokinni skýrslu stjórnar, samþykktir reikninga og öðrum hefðbundnum aðalfundar störfum, útnefndi Castró sig einráðan í stjórn og tilgreindi meðstjórnendur, eða með öðrum orðum, eingin breiting var á þeirri uppstillingu stjórnar frá fyrra ári.

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:48

Aðalfundur 2009

Aðalfundur Gaflara verður haldinn á Fjörukránni (Salurinn á jarðhæð hótelsins) 14 mars næstkomandi klukkan 17:00. Samkvæmt lögum félagsins fer fram kosning til formanns, gjaldkera og meðstjórnanda á aðalfundi þetta árið. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að bjóða sig fram verða að skila framboðum til núverandi stjórnar fimm dögum fyrir aðalfund. Tilllögur að lagabreytingum sem bera á upp á aðalfundi verða að hafa borist stjórn tíu dögum fyrir aðalfund. Núverandi lög Gaflara má lesa hér (Þú verður að vera innskráður á vefinn) Þegar hefur núverandi stjórn lýst yfir á huga á að starfa áfram.

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:43

Félagsgjöld 2009

Þrátt fyrir alhvíta jörð og hrakspár veðurguðsinns fyrir komandi misseri þá hlítur að fara að koma hjólafæri. Allavegana er farinn að koma kurr í Gaflara. Metnaðarfull dagskrá sumarsinns er að mestu tilbúin og má þar helst nefna tvo helgar-rúnta, nokkrar lengri dagsferðir og að sjálfsögðu endurtökum við smurdaginn góða sem var algert „kikk-start“ á sumrinu í fyrra. Við kvetjum alla Gaflara til að líta á dagsránna og skrá sig tímanlega í þá viðburði sem krefjast einhvers undibúnings svona til að einfalda skipulagið.

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:42

Naglinn

Gaflarar eru naglar, að minnsta kosti einn okkar sem tók sig til og mætti á mánaðarlegan félagsfund bifjólaklúbbsinns á hverju öðru en jú, mótorhjóli. Það var „bara“ hvít jörð og -12 gráður, en það hafði ekki áhrif á það að standast áskorunina um nafnbótina „naglinn“. Félagsfundurinn var annars fjörugur þó Húna væri sárt saknað, en ekkert hefur til hanns spurst eftir fjörugt þorrablót Sturlunga um síðustu helgi, spurning hvort hann sé lagstur í víking?

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:41

Jakkinn

Fidel Castró sá mæti maður hafði sér ákveðna ásýnd þegar hann kom opinberlega fram. Hann var alltaf með húfuna góðu auk þess sem eitt af hans aðalsmerkjum var græni hermanna jakkinn sem hann var alltaf í, Þetta orsakaði það að þegar um hann er rætt birtist í huga manns mynd af ákveðnum og ráðandi manni. Sigurjón Castró okkar Gaflara berst líka við að skapa sér ámóta ásýnd og nafni hans á Kúbu, þó hallari undir Bush sé, jakkinn hans er úr ekta amerísku gallaefni í orginal lit.

Birt í Fréttir
Þriðjudagur, 02. desember 2008 00:39

Eirðarlausir Gaflarar

Það er óhætt að segja að fráhvarfs einkennin eru farin að segja til sín og jaðraði við skjálfta og taugakippum í þeim Göflurum sem mættu á mánaðarlegan hitting í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins fyrsta þriðjudaginn í desember. Menn kepptust við að hughreista hver annan og lofa því að veturinn verði fljótur að líða. Gulli-Gjald mætti með „heimabakaðar“ jóla smákökur og dáðust menn að því hvað hann var duglegur að föndra og merkja plastöskjurnar sem baksturinn var í.

Birt í Fréttir
Síða 1 af 2