Nýr heiðurs Gaflari
Það gerðist í skjóli jóla að heiðurs Göflurum fjölgaði um helming. Það var frítt föruneyti Gaflara sem heimsókti Ásgeir Sumarliðason á annan í afmæli á milli jóla og nýárs en hann hélt upp á sjörugs afmæli sitt þann 26.12.2009. Castró okkar Gaflara færið Ásgeiri heiðursskjöld og gull bryddað Gaflara merki til stafestingar heiðurs nafnbótinni „Heiðurs Gaflara númer tvö“. Nú er bara spurning hvort Húni (Gamli-skápur) og Ásgeir (Verðum við ekki að finna eitthvert viðurnefni á hann ?) stofni ekki með sér deild heiðurs Gaflara innan félagsinns ? Gaflarar óska Ásgeiri til hamingju með árin sjötíu og heiðurs nafnbótina !
Húni (Björn Hermannsson) Heiðraður !
Það var eitt bjart miðvikudagskvöld að Húni lallaði sér niður í skúr, sópaði gólfið og strauk rykið af vespunni. Hann átti von á gestum, bónda nokkrum frá Höfn sem Castró hafði rekist á á ferð sinni um landið. Bóndi þessi átti alveg eins vespu og langaði að fá að sjá eintak Húna og Castró kom því í kring... Húni settist á vespuna, setti í gang, „úr hvorri áttinni skyldu þeir nú koma?“ Svo hjólaði hann vespunni fram og aftur um götuna í þeim tilgangi að taka á móti gestunum...


