Aðalfundaruppgjör
Aðalfundur gaflara var haldinn á Fjörukránni 27 febrúar. Það voru rúmlega 40 Gaflarar sem söfnuðust saman snjóþungan laugardag til þess að fara yfir hjólaplanið fyrir næsta sumar og rifja upp það síðasta. Í hjáverkum kusum við svo stjórn og sinntum öðrum aðalfundarstörfum. Sjórn Gaflara fyrir komandi starfsár er óbreytt með Castró, valdlausan en með jakka í broddi fylkingar og okkur hina í humátt á eftir. Að formlegri dagskrá aðalfundar lokinni týndust menn í söngvatnið á meðan beðið var eftir steikinni. Steikin reyndist hinsvegar vera fangelsis kássa að hætti hússins sem menn slöfruðu í sig mis glaðir. Að matnum loknum týndust menn yfir á Aróma þar sem söngvatnið var sötarað fram undir morgun, a.m.k. af sumum.... hvaða tegund af hákarlalýsi er það sem Húni er að drekka ? En umfam allt var dagurinn góður, dagskrá sumarsins spennandi og við getum áram lagt Castró í margelti, svo fjörið blasir við Göflurum á komandi hjólatímabili.
Myndir fá aðalfundi eru í myndasafni.
Nýr vefur
Castró okkar skiptir reglulega um jakka, Óli skiptir reglulega um mótorhjól, Gulli skiptir reglulega innkomunni og ofurhippinn skiptir á milli hjálpadekkja… þar með tel ég að sem vefstjóri hljóti ég að fá að skipta um eitthvað… og EKKI skipti ég út Hondunni ! þannig að ég ákvað að skipta út vefnum… Gamli góði vefurinn var orðinn efiður í meðhöndlun, var hættur að vilja taka við nýjum myndum.. og þá sérstaklega af jakkanum.. hverju svo sem það sætir.
Hinar mögnuðu hliðar jakkans !
Þær eru nokkar hliðar jakkans þessa dagana.. eða eru jakkarnir kannski fleiri en einn, a.m.k. mætti Castró okkar í leður útgáfunni í dag.. sennilega tilraun til að vera harður og töff. Sú fyrirættlan kappans féll þó með öllu alveg um sig sjálfa þegar hann fór að dásama hænuna ( Suzuki ). Fundur kvöldsinns var hinsvegar hin mesta skemmtun, myndir sumarsinns voru látnar rúlla á varpa og var upprifjunin skemmtileg,
17.okt
Því planið er að hittast og eiga glaða kvöldstund...
... Stjórn verður kennt á dagatal
... Beggi sýnir hvernig setja á gler á mótorhjól
... Gulli Gjald gefur upplýsingar um Tortola
... Húni segir heiðurssögur
... Castró með aðstoð Önnu sinnar.. sýnir G-Strengja tískuna
... Ásgeir kennir hvernig maður á að hlýja sér í Hvalfirðinum
... Jói fjallar um mótorhjólamenningu í samfélagi húsbílaeiganda
... Bess tekur Kántrý lag
... og allir Gaflarar skemmta sér vel, rifja upp sumarið, slútta þessu með stæl og bauk í hönd !
Jakkinn
Fidel Castró sá mæti maður hafði sér ákveðna ásýnd þegar hann kom opinberlega fram. Hann var alltaf með húfuna góðu auk þess sem eitt af hans aðalsmerkjum var græni hermanna jakkinn sem hann var alltaf í, Þetta orsakaði það að þegar um hann er rætt birtist í huga manns mynd af ákveðnum og ráðandi manni. Sigurjón Castró okkar Gaflara berst líka við að skapa sér ámóta ásýnd og nafni hans á Kúbu, þó hallari undir Bush sé, jakkinn hans er úr ekta amerísku gallaefni í orginal lit.
Eirðarlausir Gaflarar
Það er óhætt að segja að fráhvarfs einkennin eru farin að segja til sín og jaðraði við skjálfta og taugakippum í þeim Göflurum sem mættu á mánaðarlegan hitting í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins fyrsta þriðjudaginn í desember. Menn kepptust við að hughreista hver annan og lofa því að veturinn verði fljótur að líða. Gulli-Gjald mætti með „heimabakaðar“ jóla smákökur og dáðust menn að því hvað hann var duglegur að föndra og merkja plastöskjurnar sem baksturinn var í.
Gaflara glaumur og gleði
Það var föngulegur hópur Gaflara sem lagði leið sína í Kiwanis salinn föstudaginn 17 okt. Og tilgangurinn... að lyfta sér upp og „punkta“ gott hjólasumar. Mæting var góð og mikill galsi á mönnum já og konum. Myndir síðustu hjólatúra rúlluðu á skjávarpa og upprifjun sumarsins var í hávegum. Castró fór offari á uppboði á fánum félagsins og búast menn fastlega við að útkoman verði kærð til alþjóðanefndar glerlausra ofur-biker-a. En umfram allt var þetta góður punktur á frábæru hjólasumri og allir skemmtu sér hið besta langt framm á næsta dag.
Gaflara-gleði
Nú er komið að því að Gaflarar geri upp hjólasumarið og sulli aðeins í sig mál-örvandi méði. Blús bandið ZZtop leikur fyrir „dansi“ í beinni útsendingu af geisladisknum og myndum sumarsins verður varpað á veggi. Heiðurs-Gaflari númer eitt kennir kínverskan pöndu-dans og Castró (formaðurinn) heldur uppi einræðum.
Gaflara tískan
Búið er að gera samning við saumastofu um að framleiða nýja línu af hátísku vöru sem verður "það flottasta" í hjólabransanum á komandi árum !! Eða með öðrum orðum nú getum við boðið uppá boli og peysur með Gaflaramerkinu ásamt nýrri "Hauskúpu - útgáfu" af því. fyrsta pöntunverður send eftir nokkra daga svo nú er að hafa hraðan á ef menn ætla að tolla í tískunni !!
Er ekki kominn timi á jakka ?
Jæja..... þá er sumarið formlega farið a.m.k. samkvæmt almanakinu og hjólatúr þýðir ullarbrók þessa dagana og það er bara ekkert cool. Bjórkvöldið að baki, skylst reyndar að það sé bjórkvöld 17. hvers mánaðar héðan í frá hjá Húna... spurning hvort við hinir fáum að vera með. Bjórkvöldið var hin besta skemmtun og þegar hæst stóð voru um 60 Gaflarar á svæðinu já og castró. En þó sumarið sé formlega að baki, þá eru Gaflarar enganveginn af baki dottnir þó kannski verði ekki mikið hjólað á næstunni, ætlunin er að hefja formlega vetrar fundi núna fyrsta þriðjudag í nóvember og mánaðarlega fram á næsta hjólasumar. Ætlunin er að reyna að bridda upp á einhverjum uppákomum á fundum í vetur og reikna ég með að Castró taki af skarið og mæti á fyrsta fund sem „jakkinn“... þ.e. ef hann finnur hann! Eins og í fyrra þá hefur Kvartmílu klúbburinn lánað okkur aðstöðu í félagsheimili sínu og verða fundir vetrarins þar eins og í fyrra, við vonumst til að sjá sem flesta í vetur, og allar hugmyndir að uppákomum, kynningum eða hænsnarækt eru vel þegnar !


