hæ hæ
Við magga höfum verið beðin um að halda ljósmyndasýningu í tegslum við miðbæjinn í Hafnarfyrið núna í vor, okkur datt í hug að hafa mótorhjóla þema og fá ykkur gaflarana með okkur í lið, pælingin er að taka "bílskúrs" myndir þar sem menn/konur eru að ditta að, gera upp, bóna nú eða bara góna á hjólið og bíða eftir vorinu. við ætlum að láta gaflaramerkið sjást einhverstaðar á öllum myndum og tengja sýninguna beint við gaflara.
svo nú leitum við til ykkar um að fá að koma í heimsókn í skúrinn og taka nokkrar myndir með öllu því sem því fylgir
við höfum sennilega pláss fyrir 15 - 20 myndir
opnunin verður 7 júní, og vorum við að gæla við að fá gaflara til að mæta á hjólumun í miðbæinn og vera með smá rock og læti
hérna er ein "demo" mynd... svona til að sýna hvað við erum að hugsa !
Kv, Beggi og MAgga