Sem fyrrvarndi eigandi Hardley Moving Davidson mótorhjóla já nokkuð mörg frá árinu 1991, því ég var alltaf að leita að rétta Harley hjólinu !! Þá eru þau auðvitað misjöfn eins og aðrar tegundir, því það eru nokkrar mismunandi gerðir, t.d. með mótorpúðum eða án mótorpúða en þá með svokölluðum counterbalance. En þetta er alltaf tveggja strokka V mótor með undirliftustöngum að öllu jöfnu loft og olíukældir. En að ferðast á í hinu stóra USA þar sem leiðir eru langar og beinar, með nokkuð góðu malbiki og þá með farþega aftaná, þá eru fá hjól þægilegri en Harley Ultra, þ.e. ferðahjólið frá Harley sem er með hægindastól fyrir farþega, aflið aksturseiginleikar jú þeir eru svona á pari við aðra hippa/krúsera frá Japan. Svona að gamni þá virðist tegunda dýrkun vera til vegna allra tegunda í raun, t.d. í Vestmannaeyjum er bara til ein tegund að viti HONDA, svona alveg okkar á milli þá er Súkka lang lang besta hjólið í Göflurum ja þ.e. Bandit. Mér finnst sjálfum breskt best ekki spurning !! Því eru menn heppnir þegar þeir leigja hjól,þeir geta skilað þeim og keypt sér eitthvað viturlegt.
p.s. ég á ekki Harley í dag og mun nær örugglega aldrei kaupa annan Harley