Welcome, Guest
Username: Password: Remember me
  • Page:
  • 1

TOPIC: Vorið er mætt, vonandi.

Vorið er mætt, vonandi. 8 years 10 months ago #4514

Sælir félagar.

Langt síðan að ég hef hitt ykkur en ætla að reyna að bæta úr því þetta sumarið og hjóla meira.

Eitt sem mig langar að minnast á, sumum er þetta eðlilegt en aðrir spá bara ekki í þessu, en það er að muna eftir að athuga loftþrýsting í dekkjunum hjá sér áður en farið er af stað.
Ég tók mitt hjól út í gær eftir vetursetu og bæði hjól voru í 29 pundum en eiga að vera í 42.
29 pund gera hjólið leiðinlegt í akstri og nánast hættulegt í beygjum svo þetta er mjög mikilvægt atriði að fylgjast með. Algengt er að 42 pund séu málið í mótorhjóladekkjum en það stendur utan á þeim hver þrýstingur á að vera, bæði í köldu og heitu dekki.

Svo er náttúrulega allt hitt að sem huga þarf að áður en farið er af stað en óþarfi kannski að tíunda það hér.

Svo bara að keyra eins og skynsemin segir og koma heil heim.

Vonandi fáum við svo bara gott sumar og yl í kroppinn eftir leiðinlegan vetur.
The administrator has disabled public write access.
  • Page:
  • 1
Time to create page: 0.161 seconds