Sælir
Konan brá undir sig betri fætinum um daginn og keypti enn eitt hjólið, svo nú eru komin þrjú í safnið. Að þessu sinni var keypt hjól framleitt snemma á þessari öld, en þess má geta að hinar Hondurnar tvær eru orðnar hálfgamlar
Fyrir valinu varð Honda (hvað annað ?) VFR 2003 módel. Þó gripurinn sé góður að flestu leyti, þarf aðeins að sansa nokkur atriði og verður veturinn notaður til þeirra verka. Meðal þess sem er á listanum er að setja upphituð handföng, rafmagnstengla fyrir gps og síma, ásamt því að laga aðeins til þar sem einhver fyrri eigandi hefur skrikað á svelli akkúratsins
Einnig þarf að setja nýtt framdekk og væntanlega verður Michelin Pilot Power 4 fyrir valinu.
Gömlu hjólin fá kannski smá strokur í vetur; CB750F hjólið þyrfti að fá allsherjar hreinsun og bón og gamla CB400F hjólið fær vonandi nýja gjörð og teina að aftan og svo er stefnan að fjárfesta í nýju pústi.
Góðar stundir