Jónas kallar vélhjólamenn lúsera á bloggi sínu þann 31.júli síðastliðinn.
Sæll Jónas
Ég er yfirleitt mjög hrifinn af blogginu þínu og oft sammála þér, en ég er vélhjólamaður og þá kallaðir þú lúsera í “Ingólfstorg er slömm” þann 31.júlí síðastliðinn, því er ég ekki sammála.
Eflaust eru til lúserar hjá vélhjólamönnum sem blaðamönnum, en lúser er ég ekki Jónas, heldur venjulegur maður eins og þú sem hef núna, eftir að vera búinn að borga skatta og skyldur og ala upp börnin mín sem erfa þetta land, efni á að stunda þetta skemtilega áhugamál, pússa fákinn og renna svo af stað á góðum degi, koma við á torginu og hitta félagana, kannski ekki ósvipað hestamennsku.
Þú ættir að gera þér ferð á Ingólfstorg á þuru sumarkvöldi sérstaklega þegar stytt hefur upp eftir rigningatíð, þá fylla fínpússaðir fákarnir torgið og gangstéttina langleiðina niður Austurstræti, ferðamenn sýna þessu mikinn áhuga spjalla við okkur og taka myndir, þetta kryddar miðbæinn og hressir upp á steypuklumpinn.