Get ekki lofað að veðrið hafi verið "fest" eins og Gulli segir. Myndin var nefnilega ekki tekin á mína myndavél
. Nú um mundir gengur hversdagsmynda faraldur á fésbókinni eins og mörgum Göflurum, sem þar eru, er líklega kunnugt. Ætla svo sem ekki að innleiða þann faraldur hér en stenst ekki mátið og birti hér eina mynd sem er ekki heldur úr minni myndavél. Þessi er tekin utarlega á Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði og sýnir sólarlagið eins og það er langflest sumarkvöld þar.
Spurning um að gera óformlega skoðanakönnum og biðja þá sem ekki eru á fésbókinni að rétta upp hönd