Hér kemur þetta svart á hvítu Yamaha er náttúrulega lang best.
2014-02-19 at 09.37.16Í fyrstu könnun Consumer Report á viðhaldi mótorhjóla í Bandaríkjunum á árunum 2009-2012 má sjá áhugaverðar niðurstöður sem birtar voru nýlega. Þar lenti Yamaha í fyrsta sæti og stóð sig sex sinnum betur en merkið sem lenti í neðsta sæti sem var BMW. Alls voru eigendur 4.680 mótorhjóla beðnir um að skila upplýsingum um bilanir í hjólum sínum en aðeins fimm merki skiluðu nægum upplýsingum til að geta talist marktækar. Það voru Yamaha, Kawasaki, Honda, Harley-Davidson og BMW. Um fimmtungur hjólanna taldist hafa fengið alvarlega bilun en aðeins 10 Yamaha hjól töldust til þess flokks.Consumer Report skoðar reglulega bílaframleiðendur með sama hætti. Þótt Suzuki og Triumph hefði ekki haft nægar tölur til að byggja á marktækar niðurstöður bentu upplýsingar Consumer Report til þess að Suzuki væri á pari við önnur japönsk hjól en Triumph væri fyrir neðan meðallag. Eigendur ferðahjóla urðu mest varir við bilanir eða 27%, Dual-Sport hjóla næstmest eða 23% en Krúserar aðeins 16% eða svipað og sporthjólin. Flestar bilanir voru auðveldar viðfangs og aðeins 3% náðu til vélarinnar, sem var sama hlutfall og fyrir gírkassa og drif. Algengasta bilunin var á ljósabúnaði og mælaborðum eða 21%, en næstalgengust á bremsum eða 20%. Eldsneytisvandamál voru um 16& en samkvæmt sérfræðingum mátti rekja mörg þeirra vandamála til ónógrar umhirðu að vetri til meðan hjólin voru ekki í notkun. í 75% tilfella kostaði viðgerðin 25.000 kr eða minna. Þrátt fyrir að Harley-Davidson og BMW eigendur hefðu komið verst út úr könnuninni voru þeir samt ánægðustu eigendur hjóla sinna, en 75% Harley-Davidson eigenda sögðust myndu kaupa hjól frá merkinu aftur, og 74% BMW eigenda sögðu það sama.
consumer-reports