Welcome, Guest
Username: Password: Remember me
  • Page:
  • 1
  • 2

TOPIC: Er Harley Davidson mótorhjól?

Er Harley Davidson mótorhjól? 9 years 7 months ago #4284

Sælir félagar,

Við Helga lentum Keflavíkurflugvelli kl. 06.40 í morgun eftir 12 frábæra daga í Ameríku-hreppi þar sem ekið var um á Harley Davidson í 10 daga. Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hjólaði á Harley Davidson og komst að því fyrsta daginn að þetta var Harley ferð, ekki mótorhjólaferð því Harley og mórorhjól er sko sitt hvor hluturinn. En þar sem 95% ferðafélaganna voru Hard-Core Harley menn (og konur) sem sofa með Harley sængurföt og sitja á Harley sófasettum í stofunni heima þá þurfti maður að passa sig á að vera ekki með særandi ummæli. En mikið var ég feginn þegar ég skilað i þessu skjálfandi, skröltandi, skjöktandi mótor.....eitthvað og mikið hlakka ég til að fá að setjast aftur á mótorhjól.

Kveðja
Arnar
The administrator has disabled public write access.
  • Page:
  • 1
  • 2
Time to create page: 0.078 seconds