Ísafjörður - stórasta helgarferðin.
8 years 10 months ago #4536
Eitt sem nauðsynlegt er að hafa í huga í ferðinni okkar er bútaviðhald á slitlagi þjóðvega. Á leiðinni vestur má samkvæmt kortunum hér fyrir neðan búast við lausamöl þess vegna, sérstaklega á leiðinni frá Bröttubrekku og upp Staðardalinn og yfir Steingrímsfjarðarheiði í Ísafjörðinn austanverðan. Hef fregnir af því að viðhaldið í Djúpinu hafi verið fyrir síðustu helgi og búið að sópa þar.
The administrator has disabled public write access.
Ísafjörður - stórasta helgarferðin.
8 years 10 months ago #4532
Sælir félagar
Þetta lítur bara vel út með veðrið eins og staðan er núna.
Þá er bara að gera hjólin tilbúin og vera mættur á föstudagsmorguninn á Shell Vesturlandsvegi fyrir kl. 09:00.
kveðja
Gulli
The administrator has disabled public write access.